Didda ;o)
*Óskabörnin mín*
Síðast innskráður
Ég var síðast inni þann 17 september
Könnun
Þekkirðu mig?



17.09.2009 23:16:29 / diddulius

17. september

VÁ hvað er langt síðan ég bloggaði:!: Ég hef bara ekkert kíkt hingað í nokkra mánuði :$
En já, "átakið" svokallaða heldur áfram, ég var svo sannarlega í sumarfríi enda hefur ekkert jákvætt gerst! Ég hef bara bætt á mig næstum því öllum þeim kg sem ég var búin að losna við :^)

En ég er SAMT ennþá ákveðin í að láta þetta gerast og því fyrr því betra. Ég hef loksins fest kaup á brennslutæki sem ég get notað hérna heima :haha: ég er ekkert smá ánægð enda búið að vera á dagskrá í um 1 ár 8| Já, svona getur maður verið lengi að framkvæma hlutina haha :haha: ég er búin að taka nokkra prufutíma og sjetturinn hvað maður svitnar við þetta.

Í dag var s.s. "nýtt" upphaf hjá mér. Allt mataræði hefur verið tekið í gegn frá A-Ö. Við höfum verið að skipta út þeim matvörum sem við kaupum venjulega í aðrar eða hollari tegundir. Við étum endalaust af grænmeti og það hefur ótrúlega góð áhrif á jákvæðnina, þótt það sé ekki enn farið að sjást á vigtinni ;) Allavega næri ég sálina mína þegar ég borða grænmeti haha :haha:

Í dag tók ég góða brennslu og 3 sett af magaæfingum, borðaði oggupons Cheerios í morgunmat og svo æðislegt kjúklingasalat í hádeginu. Í kaffinu fékk ég mér flatbrauð og í kvöldmatinn súpu :haha: Jámm, þessi dagur hefur verið góður :haha: Dagurinn á morgun verður líka góður vona ég, en þetta er eins og AA, maður verður að taka 1 dag í einu ;)

Bæ í bili

Didda


» 0 hafa sagt sína skoðun

05.05.2009 08:57:51 / diddulius

5. maí :o)

Hæ hæ 8)

Jæja jæja aldeilis ætla ég að vera dugleg að blogga haha :haha: Annars er lítið að frétta síðustu daga, er búin að vera rosalega löt eitthvað .. En ég er nú samt búin að halda af mér þessum 6,5 kg sem farin eru ;) Ég og Silja erum komnar á fullt í ræktinni! Já, eða svoleiðis, við byrjuðum í gær hahahaha :haha: Við erum svo að fara á eftir kl 10 og stefnum á að fara alla dagana í þessari viku :haha: Vinnutíminn hjá okkur passar svona skemmtilega saman og það er frábært að hafa félagskap :d

Það er greinilega orðið of langt síðan ég fór enda er ég að DREPAST úr harðsperrum núna:!: Hundleiðinlegur fylgifiskur hreyfingarinnar ;)

En ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili, hendi inn fréttum fljótlega ;) Ætla að skella mér á vigtina á mánudaginn næsta og sjá hvort eitthvað sé á niðurleið þar 8)

Bæjó
Didda dúndur 8)


» 1 hafa sagt sína skoðun

06.04.2009 12:11:22 / diddulius

6. apríl

Hæ hæ hæ 8)

Nú eru farin alveg 6 kg :haha: Þetta er alveg meiriháttar:!:8)
Ekki leiðinlegt að vera ekkert að leggja neitt svakalega á sig og ná samt góðum árangri :haha: Svo er ég að fara að fá félaga í ræktina, þá verður maður kannski duglegri ;) Dagný og Silja ætla að skella sér með mér í Hress og þá getum við spriklað saman :haha: Mér finnst miklu betra að fá einhvern með mér, er alltof góð við sjálfa mig þegar ég er ein hahaha :haha: Svo er Þórdís mín kannski að fara að flytja í Fjörðinn aftur og ætlar þá að skella sér með okkur í Hress :haha: Bara gaman :haha:

Ætlaði bara að koma með smá update, er ekkert of dugleg við að blogga enda alveg nóg að gera hjá manni 8)

Bæjó
Didda dúndur 8)


» 0 hafa sagt sína skoðun

26.03.2009 12:45:24 / diddulius

26. mars

Hæ hæ hæ hæ :haha:
Langt síðan ég bloggaði.. hmm.. ætla mér alltaf að bæta úr þessu en geri það svo aldrei hohoho ;) En það hefur allt gengið eins og í sögu vigtarlega séð en ég hef EKKERT getað farið í ræktina :cry: Alveg ömurlegt:!: Það hafa verið þvílík veikindi hérna heima en það virðist vera að skána eitthvað núna sem betur fer.

En það eru samt góðar fréttir að færa ;) Enn og aftur steig ég á vigtina og núna eru farin tæp 6 kg!! Jahá!! Geri aðrir betur :d Núna er fyrsta markmiðinu náð eða 5 kg markmiðið :haha: Ég ætlaði mér einhver verðlaun þegar þessu marki væri náð en ég er búin að gera allt sem var á þessum verðlaunalista þannig það skiptir ekki máli :haha: Að sjá vigtina fara niður eru andskoti góð verðlaun finnst mér :haha:

Ég vona að ég nái að halda áfram á þessari braut. Ég er samt svo fegin að ég sé að gera þetta í rólegheitum, það er lítið mál að ná af sér nokkrum kg á fáum vikum en þau kg virðast alltaf koma aftur. GÓÐIR HLUTIR GERAST HÆGT! :haha:

Hef þetta ekki lengra í bili babies ;)

Didda dúndur


» 0 hafa sagt sína skoðun

05.03.2009 22:01:47 / diddulius

5. mars :o)

Ég fór á vigtina í gær og það er 1 kg farið í viðbót:!::!::haha::haha:

Ótrúlega gaman bara :lol: Vigtin er bara enn á niðurleið og ég get ekki verið annað en mjög glöð með það :d Ég reyni eins og ég get að halda mínu striki og halda áfram að léttast :d Það er farið að sjást á mér að ég er öll að minnka :d

Ég hef ekkert verið dugleg í ræktinni en það er búið að vera brjálað að gera hjá mér undanfarið. Ég var búin að lofa sjálfri mér að ég skildi reyna að skipuleggja tímann minn út frá ræktinni en ekki láta ræktina mæta afgangi. Ég verð að fara að skipuleggja mig betur og fara ALLTAF á ákveðnum tíma á ákveðnum dögum. Ég er jú að vinna og svo erum við mútta í fatasölunni og það tekur þvílíkan tíma. Svo er það auðvitað krúttin mín og heimilið sem þurfa sitt að ógleymdum yndislega unnustanum mínum :haha: En ég þarf að setja sjálfa mig hærra á forgangslistann svo mér fari að líða betur með sjálfa mig. Það er ömurlegt að líða ekki vel með sjálfan sig :s Mér líður nú samt ekkert hræðilega þannig séð, ég er með mína óléttubumbu (en ekkert barn lengur!) en hún fer minnkandi. Restin er alveg ok en ég væri nú alveg til í að minnka í ummáli.

Þannig að eftir helgina verður ræktin tekin föstum tökum :haha:

Skrifa meira fljótlega :D

Didda dúndur ;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

23.02.2009 09:16:32 / diddulius

23. febrúar :o)

Mín hoppaði á vigtina og það eru farin 1,3 kg í viðbót!! :haha::haha::haha:

Djöfull er ég ánægð með mig ;) Held bara áfram á sömu braut því ég virðist vera á réttri leið :haha: Það er um að gera að byrja hægt og rólega og halda dampi frekar en að sprengja sig á nokkrum vikum og fá algjört ógeð. Núna er ég búin að halda mér í þessu sama fari síðan í byrjun janúar og það er dágóður tími finnst mér, hef yfirleitt verið við það að gefast upp á þessum tíma :haha:

En nú er bolludagurinn í dag og ég býst við því að smakka þessar dýrindis bollur sem ég er með hérna heima :haha:

Kær kveðja, Didda dúndur ;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

16.02.2009 15:31:24 / diddulius

16. febrúar :o)

Vúhú! :haha:
Mín var að koma úr ræktinni og er alveg rennandi sveitt :haha: Ég og Gummi skelltum okkur áðan og mamma passaði litlu prinsessuna á meðan :d Alveg æðislegt hvað fjölskyldan er alltaf tilbúin að hjálpa með hvað sem er :haha: En ég er búin að setja saman ágætis stundaskrá fyrir sjálfa mig, hjálpar mér að halda utan um allt sem þarf að gera svo ég komist líka í ræktina. Það þarf að endurskipuleggja hitt og þetta svo ég og Gummi getum haldið áfram að fara í ræktina, ætlum að fara á hverjum degi. Ef við förum ekki í ræktina þá verður einhver önnur hreyfing að taka við, göngutúr eða eitthvað slíkt. Gummi er reyndar svo andskoti öflugur að hann getur vaknað kl 5 á morgnana, skellt sér í ræktina og verið kominn heim áður en við hin vöknum :d Ég vildi að ég væri svona dugleg :$ Kannski kemur það seinna hjá manni :haha:

En ég ætla mér ekki að setja mér nein langtímamarkmið, heldur einbeita mér að núinu og því sem ég get gert frá degi til dags. Skammtímamarkmiðin ganga yfirleitt betur hjá fólki, allavega hvað varðar hversu mörg kg fólk vill losna við. En ég ætla mér að byrja á 5 kg í viðbót og setja mér svo annað markmið þegar því verður náð.

En svo fór skvísan í ljós líka í dag, góður dagur hahaha :d Mamma bauð mér að fá tíma af kortinu hennar og ekki gat ég neitað því ;) Það er orðið svo helvíti dýrt að fara í ljós að ég bíð spennt eftir sumrinu. Þá ætla ég bara að liggja úti á (vonandi) pallinum mínum og sóla mig inn að beini 8) Við erum nú þegar farin að plana sumarið aðeins og VÁ hvað ég hlakka til :!: Það verður margt á dagskrá eins og er venjulega á sumrin hjá okkur. Ábyggilega engar útlandaferðir þetta árið enda sjúklega dýrt. Það verður bara gert eins og mamma og pabbi gerðu með okkur systkinin í gamla daga, endalausar útilegur og ferðalög um fallega landið okkar :haha: Það verður 1 fjölskyldumót í Þjórsárdal, 1 eða 2 ættarmót, allavega 2 aðrar útilegur og svo auðvitað verslunarmannahelgin :haha: Við stefnum líka á að fara í sumarbústað í vor ;) Ég hlakka rosalega til að fara með stórfjölskyldunni minni í hverja útileguna á fætur annarri :haha: Ég vona bara að við verðum búin að fá okkur fellihýsi fyrir sumarið, ekki væri það leiðinlegt ;) Þá verða ferðalögin ábyggilega miklu fleiri:!:

En jæja þetta er orðin ágætasta færsla um allt og ekki neitt, ég ætla bara að láta þetta duga :haha:

Kveðja, Didda dúndur ;)




» 0 hafa sagt sína skoðun

14.02.2009 10:40:59 / diddulius

14. febrúar :o)

Haha það ætlar ekki að virka hjá mér að vera duglegri í þessu bloggi ;) En nú ætla ég að reyna betur ;) hohoho segi þetta alltaf :haha:

En ég hef ekkert farið meira í ræktina eftir þetta eina skipti. Ég er búin að vera frekar slöpp og haft lítið þrek. En ég ætla að drulla mér á mánudaginn og taka almennilega á því :haha: Ég fór nú samt í sund síðustu helgi en ég fór ein með báða krakkana þannig það var nú lítið hægt að sprikla.

Ég tók svo loksins vigtina með heim í gær og steig á hana í morgun. Mér til mikillar gleði þá stend ég enn í stað :haha: Ég finn alveg að það virkar ekkert á mig að borða 6x á dag, þó það séu litlar máltíðir. Ég þarf að borða sjaldnar og minna í einu, þá fer eitthvað að tálgast af mér. Þegar ég hef reynt þetta að borða 5-6x á dag þá fer það bara í rugl og maður gerir lítið annað en að hugsa um mat! Frekar fá sér bara að borða þegar hungrið segir til sín og gera það um leið og það segir til sín vegna þess að þá eru minni líkur á því að maður fái sér eitthvað djúsí fitandi.

Gummi minn er samt MIKLU öflugri en ég :!: Hann er svo rosalegur þegar hann er búinn að ákveða eitthvað, það bara kemst ekkert annað að :haha: Hann vaknar um 5 á morgnana og er mættur í ræktina hálf 6, kominn heim rétt fyrir 8 og fer með Samúel á leikskólann :haha: Ekkert smá duglegur! :haha:

En ég ætla að skrifa meira á mánudaginn þegar ég er búin í ræktinni :haha:

Bless í bili

Didda dúndur ;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.02.2009 11:37:57 / diddulius

6. febrúar

Jæja jæja mín er búin að fara í ræktina!! ;)
Ég skellti mér í morgun með Elsu og við tókum hressilega á því :haha: Mér finnst ég bara vera eins og eitthvað gúmmí hérna haha :haha: Við förum svo aftur á morgun en það verður kannski erfitt að samhæfa þetta um helgina þar sem ég og Gummi erum bæði að vinna.. En það kemur í ljós ;)

En það kom mér skemmtilega á óvart í gær þegar ég fór á vigtina mína (sem ég gleymdi svo aftur hjá mömmu!!) að ég er 2,5 kg léttari núna en þegar ég varð ófrísk af Söndru :haha: Rosa gaman að því :haha: En það þarf ansi mikið af kílóum að hrynja af mér svo ég nái sömu þyngd og þegar ég var ófrísk af Samúel ;) Það eru alveg 14,5 kg í það 8| og það skal takast hjá mér :haha:

Skrifa meira á morgun ;)

Didda dúndur


» 3 hafa sagt sína skoðun

05.02.2009 22:22:36 / diddulius

5. febrúar

Hæ aftur :d

Ég varð að deila með ykkur, kæru lesendum, að í dag tókum ég og Gummi stórt skref í átt að betri lífstíl og heilsu :haha: Við fórum og keyptum okkur árskort í líkamsrækt :haha: Þetta er kannski ekkert svo stórt skref þannig séð, en við erum búin að tala svo lengi um þetta svo við urðum að láta verða af þessu :haha:

Breytta mataræðið gengur vel og það er greinilega að hafa áhrif á vigtina ;) Þannig að árangurinn á ábyggilega ekki eftir að láta á sér standa þegar við förum á fullt. Gummi fór núna í kvöld og það gekk bara mjög vel. Ég ætla að fara á morgun, en hvenær veit ég samt ekki.. En ég fer ;) Og ég hlakka bara rosalega til :haha:

Í næstu viku fæ ég svo símtalið frá doksanum sem ég talaði við í samb. við aðgerðina sem mig langar svo í. Þannig að eftir viku ætla ég að festa dagsetningu og það verður ekkert bakkað með það ;)


Kær kveðja, Didda sem er svo bjartsýn á lífið allt :haha:


» 0 hafa sagt sína skoðun

04.02.2009 13:39:41 / diddulius

4. febrúar

Hæjjj :d

Haldiði ekki að mín sé bara enn að léttast!! Það hefur greinilega virkað þetta breytta mataræði hjá okkur ;) Það er allavega farið 1 kg í viðbót ;) Mér tókst að gleyma nýju vigtinni minni heima hjá múttu þannig að ég þarf að kíkja þangað og sækja hana :haha:

Svo er ýmislegt á dagskrá hjá okkur á næstunni.. Ég hugsa að ég fari í HÍ næsta haust, ég var á því að fara í hjúkrunarfræðina en er ekkert svo viss lengur, núna er það félagsráðgjafinn sem heillar mig meira.. æji ég veit ekki hvað ég geri, en ég ætla allavega í HÍ næsta haust :haha:

Svo verður Gummi minn 26 ára 19. feb :haha: Orðinn hundgamall elsku kallinn ;)

Úff er alveg tóm eitthvað núna, ég skrifa meira fljótlega ;)

kv. Didda dúndur


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.01.2009 12:43:41 / diddulius

22. janúar

Jæja jæja :haha:

Það eru farin 2 kg síðan ég skrifaði síðast ;) Ég veit nú ekki alveg hvernig ég fór að því hehe :haha: Ég hef verið að passa mataræðið uppá síðkastið og farin að borða MUN minna en venjulega, þó ekki þannig að ég verði mjög svöng. En ég hef samt alveg fengið mér nammi 2x (eða jafnvel bara 1x?) og ekkert hreyft mig.

En það gengur bara ágætlega að skipta um mataræði, við erum að gera það hægt og rólega svo við náum að venjast þessu jafnóðum. Það er keypt mun meira grænmeti, ávextir og minni matarskammtar eru eldaðir. Það verður samt engin hollusta hérna í kvöld þar sem prinsinn minn vildi endilega fá kjötbollur í brúnni sósu ;) Auðvitað segir maður ekki nei við litla krúttið sitt :haha: Hann er að fara að vinna með pabba sínum, Árna frænda og afa uppí húsi og verður eflaust mjög svangur þegar hann kemur heim :haha:

Ég ætla svo að drulla mér í sund þegar fer að hægjast um hjá okkur, enda frekar mikið að gera hjá okkur. Það er ýmislegt á dagskrá líka á næstunni en ég ætla ekkert að fara nákvæmlega út í það hér ;)  Enn sem komið er eru ýmis leyndó í gangi ;)

En þetta er ágætt í bili, ég læt vita fljótlega hvernig gengur :d

Kv. Didda dúndur :haha:


» 2 hafa sagt sína skoðun

08.01.2009 11:58:38 / diddulius

8. janúar !!! :o)

Flottasti dagur ársins er runninn upp 8)

Mín er bara 24 ára í dag :haha: Algjört frí verður tekið frá átakshugleiðingum í dag og gæði lífsins verða í hámarki ;)


kv. Didda


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.01.2009 09:54:52 / diddulius

3. janúar

Vúhú! Það er barasta komið nýtt ár :d Mér finnst eins og það hafi verið í gær þegar aldamótin voru en nú eru bara liðin 9 ár síðan. Mikið búið að gerast, ég var bara lítið krakkarassgat á aldamótunum sem máttu ekki fara út að  hitta vini mína. Mikið þekkja foreldrar mínir mig vel, ekki hefði ég hleypt mér út sjálf hahaha :lol:

En jæja það er komið nýtt ár og þá er kallað á ný markmið. Ég náði nú ekki jólamarkmiðinu mínu en ég komst þó eitthvað áleiðis með það 8) Þannig að það verður bara haldið áfram núna að fullum krafti enda hef ég ca 4 mánuði til að ná af mér eins miklu og ég mögulega get og Gummi minn ætlar að hjálpa mér með það. Fer kannski nánar út í það næst hvað það er sem við ætlum að gera, en í aðalatriðum er það að mataræðið verður tekið í gegn frá a-ö.

Ég er orðin reyklaus:!: Frábært að byrja nýja árið þannig :d Þetta er nú ekki auðvelt og vá hvað mig langar að fá mér sígarettu... Það var miklu auðveldara að hætta að reykja þegar ég gekk með Söndru mína, þá var ég að gera það fyrir hana en ekki sjálfa mig. Það er einhvernveginn auðveldara að vera góður við aðra en sjálfan sig, eins ömurlegt og það nú hljómar hehe ;)

En ég ætla mér að komast sem næst minni kjörþyngd, hver svo sem hún nú er. Ég var hjá einkaþjálfara árið 2006 og þá reiknaði hún út mína kjörþyngd sem er um 54kg. Ég sé það nú ekki alveg fyrir mér að ég fari svo langt niður, finnst 60kg hljóma mun betur. Ég hef verið 54kg og get nú ekki sagt að það sé heppileg þyngd fyrir mig, vil hafa mín brjóst áfram takk fyrir! Langflottastar finnst mér stelpur með eitthvað utan á sér, með flottar línur. Það er hægt að vera í góðu formi án þess að vera grindhoraður. Ég væri nú mest til í fitusog bara því ég er loksins komin með rass! Ég hef alltaf verið með lítinn flatan rass en núna er ég loksins orðin það feit að rassinn er kominn! ;) Og hann verður ábyggilega það fyrsta sem fer :$ Og maginn minn verður ábyggilega sá síðast sem fer haha :d

En svo er mín bara að byrja að vinna í næstu viku :d Habba mín reddaði mér vinnu 8) það er nú ekki gefið að fá vinnu í dag svo ég lít á mig sem eina af þeim heppnu :d Ég er að vinna 2-3 kvöld í viku og hef því tíma á daginn með elskunum mínum. Gummi verður heimavinnandi húsmóðir hahaha :haha: En hann heldur nú áfram að vinna aðrahverja helgi á leigubílnum :d

Svo er mín bara alveg að verða 24 ára 8) Skrítið að ég skuli bara vera að verða 24 ára og komin með "allan pakkann". Búin að stofna mína eigin fjölskyldu, mitt eigið heimili og er búin með fyrsta skólaáfangann minn 8) Ég stefni á að byrja aftur í skóla næsta haust, það verður frábært :d

En já, næstu helgi verður dúndrandi partý hérna heima 8) Gummi er búinn að breyta afmælinu mínu í bæði afmæli og innflutningsparty og hann er búinn að bjóða ansi mikið af fólki. Það verður fjör :haha:

En ég skrifa meira fljótlega

Didda dúndur 8)


» 0 hafa sagt sína skoðun

29.11.2008 12:01:26 / diddulius

29. nóvember ;o)

Ooohhh ég var búin að skrifa slatta en svo þurrkaðist það út :evil:

Ég er sko ekki að standa mig í þessu bloggdæmi hehe :d Er ekki að nenna þessu...

En ég er búin að vera í pásu undanfarið og því ekkert búin að léttast meira. Ég er ekkert búin að þyngjast aftur svo það er bara flott ;) Ég er að spá í að vera í lágmarksaðhaldi fram yfir jólin og taka þetta bara með trompi eftir áramótin. Ég stefni á að fara í draumaaðgerðina mína í mars/apríl og það væri æði ef ég næði ca 10 kg af í viðbót, sem ætti alveg að vera möguleiki sko ef ég held vel á spöðunum :haha:

Veit ekkert hvenær ég skrifa aftur næst haha ;) Það er alveg nóg að gera hérna hjá manni með mann, börn og heimili.. Oh bara æðislegt :d

Didda dúndur ;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3
Heimsóknir
Í dag:  2  Alls: 21610
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 761 dögum
Verður prinsinn minn 6 ára :o)
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 951 dögum
Verður prinsessan mín 1 árs :o)
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1022 dögum
Eigum við Gummi 6 ára sambandsafmæli :o)